25. mars. 2010 10:01
Um þessar mundir eru 30 ár liðin frá því Grundartangakórinn kom í fyrsta skipti fram opinberlega. Af því tilefni efnir kórinn til afmælistónleika þriðjudagskvöldið 30. mars næstkomandi í Tónbergi. Það var á haustdögum 1979 sem nokkrir starfsmenn í Járnblendiverksmiðjunni komu saman til að æfa nokkur lög fyrir árshátíð starfsmannafélags verksmiðunnar. Þetta var tvöfaldur kvartett sem söng á árshátíðinni við stjórn aldraðs stjórnanda Baldurs Sigurjónssonar og undirleik ungs manns, Valgeirs Skagfjörð. Fljótlega upp úr þessu var Grundartangakórinn formlega stofnaður og á þessum 30 árum verður ekki annað sagt er starf kórsins hafi verið blómlegt eins og fram kom í spjalli við þá Árna Sigurðsson kórformann og Þorstein Ragnarsson kórfélaga sem birtist í Skessuhorni vikunnar.