25. mars. 2010 10:27
“Verkalýðsfélag Snæfellinga lýsir þungum áhyggjum yfir atvinnumálum á Snæfellsnesi á næstu vikum og mánuðum. Fjörðurinn er fullur af fiski, en nánast allur flotinn bundinn við bryggju vegna skorts á aflaheimildum. Núna um miðjan marsmánuð eru bátar búnir með kvótann sem þýðir að hér verður stórfellt atvinnuleysi. Hundruð manna í fiskvinnslu og sjómenn missa vinnuna,” segir í ályktun sem Verkalýðsfélag Snæfellinga hefur sent frá sér. Þá segir: “Því skorar Verkalýðsfélag Snæfellinga á sjáarútvegsráðherra að leita allra leiða til að auka kvótann. Eins og málum er háttað í þjóðfélaginu í dag verðum við að spenna bogann eins hátt og við getum og leyfa atvinnulífinu að njóta vafans.
Verkalýðsfélag Snæfellinga mótmælir harðlega áformum ríkisstjórnarinnar að afnema sjómannaafsláttinn. Þetta er aðför að launum sjómanna, það út í hött að ráðast á þessa stétt sem við þurfum svo sannarlega að treysta á ef þjóðfélagið á að ná sér úr þessari kreppu sem skattfrír hópur óreiðumanna kom okkur í.”