25. mars. 2010 11:59
“Áfram Ísland – ekkert ESB,” er yfirskrift fundaferðar sem Heimssýn, hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum stendur nú fyrir vítt og breitt um landið. Boðaðir hafa verið hátt í 20 fundir í þeim tilgangi að “ræða afleiðingar þess að ríkisstjórnin haldi áfram leiðangrinum til Brussel í óþökk þjóðarinnar,” eins og segir í kynningu fundanna. Heimssýn er þverpólitískur hópur fólks úr öllum stjórnmálaflokkum. Frummælendur á fundunum eru m.a. alþingismenn úr fjórum flokkum auk einstaklinga úr atvinnulífinu, framhaldsskólanemar og fleirum.
Meðfylgjandi mynd var tekin í Búðardal í gærkveldi en þar var stofnaður undirbúningshópur vegna aðildarhóps Heimssýnar í Dalasýslu og Reykhólahreppi. Á myndinni eru Ásmundur Einar Daðason alþingismaður VG og formaður Heimssýnar og Einar Kristinn Guðfinnsson alþingismaður Sjálfstæðisflokks, fulltrúar stjórnmálaflokka lengst til vinstri og hægri í litrófi stjórnmálanna.
“Menn bera þroska í þessari baráttu til að halda þessu máli sem slíku utan við önnur baráttumál sem skilja menn að hvort sem til umfjöllunar er skötuselur, skattahækkanir, forgangsröðun í ríkisfjármálum eða önnur mál,” segir Ásmundur Daði í samtali við Skessuhorn.
Á Akranesi verður fundur 30. mars nk. klukkan 20 í Gamla Kaupfélaginu þar sem verða lögð drög að aðildarhópi Heimssýnar, en í Borgarbyggð verður fundað miðvikudaginn 31. mars klukkan 20 í húsnæði Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri.