30. mars. 2010 09:54
 |
Hún var fölskvalaus gleði heimamanna eftir leikinn. Ljósm. þe. |
Það var hálfgerð flugeldasýning í Fjárhúsinu í Stykkishólmi í gærkveldi þegar Snæfell lagði Grindavík öðru sinni í úrslitakeppni IE-deildarinnar og sendi þar með Suðurnesjaliðið í sumarfrí. Sigur Snæfells var mjög sannfærandi, 110:93. Þriggja stiga skotin rötuðu ofan í hjá Snæfellingnum, þeir hittu í 19 af 32 skottilraunum. Þrátt fyrir þessar stóru tölur í lokin var leikurinn nokkuð kaflaskiptur. Grindvíkingar byrjuðu mun betur og komust til að mynda í 5:13 og 8:16 í fyrsta leikhluta. Snæfell komst svo í gang og var með 12 stiga forskot upp úr miðjum öðrum leikhluta. Þá tóku Grindvíkingar á sig rögg og leiddu með tveim stigum í hálfleik 55:57.
Jafnræði var með liðunum til að byrja með í seinni hálfleiknum, en síðan komu heimamenn mjög sterkir með grimmri vörn og mikilli hittni. Munurinn var orðinn 14 stig fyrir lokakaflann og í honum hélt sama keyrslan áfram hjá heimamönnum og öruggur og sannfærandi sigur því staðreynd.
Hjá Snæfelli var Sean Burton heitur þegar hann hrökk í gang en hann setti 24 stig og gaf 11 stoðsendingar. Hlynur Bæringsson var með 23 stig og 14 fráköst, Jón Ólafur 20 stig og Sigurður Þorvaldsson 18 stig og 8 fráköst. Hjá Grindavík voru þeir stigahæstir Páll Axel Vilbergsson með 28 stig og Darrell Flake með 24.
Það á síðan eftir að skírast hvaða liði Snæfell mætir í fjögurra liða úrslitunum, fer eftir úrslitum í þeim viðureignunum sem ólokið er.