01. apríl. 2010 06:33
Á morgun, föstudaginn langa, verður lestur á Passíusálmum sr. Hallgríms Péturssonar í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Verða allir sálmarnir lesnir og hefst lesturinn kl. 13.30 en ráðgert er að honum ljúki um klukkan 18.30. Lesturinn verður í höndum Sigurðar Skúlasonar leikara og er þetta öðru sinni sem hann les alla sálmana í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Honum til aðstoðar verður Hjörleifur Valsson fiðluleikari, sem mun sjá um tónlistarflutning í hléum. Allir eru hjartanlega velkomnir og getur fólk komið og farið að vild á meðan lestrinum stendur.
Sr. Hallgrímur var sóknarprestur í Saurbæ frá 1651-1669 eða um 18 ára skeið. Orti hann þar Passíusálmana, en þeir voru fyrst gefnir út árið 1666. Hafa sálmarnir verið kynslóðunum á Íslandi svo hjartfólgnir í gegnum tíðina að sr. Hallgríms hefur oft verið minnst sem prests allrar þjóðarinnar og hennar mesta trúarskálds.