31. mars. 2010 09:28
Framsóknarfélag Borgarfjarðar og Mýra samþykkti í gærkveldi framboðslista sinn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Framsóknarflokkur á nú þrjá fulltrúa í sveitarstjórn Borgarbyggðar. Nú samþykkti félagið að gera þá breytingu á listanum frá síðustu kosningum að núverandi sveitarstjórnarfulltrúar færast í 2.-4. sæti listans og víxla innbyrðis röðun en í forystusæti hans nú verður Sigríður Bjarnadóttir skrifstofukona í Borgarnesi.
Listinn í heild sinni er þannig:
1. Sigríður Bjarnadóttir, skrifstofukona og formaður Badmintonsambands Íslands, í Borgarnesi.
2. Finnbogi Leifsson, bóndi og sveitarstjórnarmaður í Hítardal.
3. Sveinbjörn Eyjólfsson, forstöðumaður og sveitarstjórnarmaður á Hvanneyri
4. Jenný Lind Egilsdóttir, snyrtifræðingur og sveitarstjórnarmaður í Borgarnesi.
5. Kolbeinn Magnússon, bóndi og trésmiður í Stóra Ási.
6. Ásdís Helga Bjarnadóttir, lektor og verkefnisstjóri á Hvanneyri.
7. Heiðar Lind Hansson, sagnfræðingur í Borgarnesi.
8. Kristín Erla Guðmundsdóttir, húsmóðir í Borgarnesi.
9. Skúli Guðmundsson, menntaskólanemi í Borgarnesi.
10. Halla Magnúsdóttir, forstöðumaður þjónustusviðs DAB í Borgarnesi.
11. Ólafur Sigvaldason, bóndi og verktaki á Brúarhrauni.
12. Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson, bóndi og varaþingmaður í Bakkakoti.
13. Hjalti R Benediktsson, hugbúnaðarsérfræðingur í Borgarnesi.
14. Sveinn Hallgrímsson, bóndi og búvísindamaður á Vatnshömrum.
15. Gíslína Jensdóttir, bókasafnsfræðingur á Hellubæ.
16. Guðmundur Eyþórsson, framhaldsskólakennari í Borgarnesi.
17. Dagný Sigurðardóttir, skrifstofukona á Skeljabrekku.
18. Sigrún Ólafsdóttir, bóndi og formaður Félags tamningamanna í Hallkelsstaðahlíð.