09. apríl. 2010 09:04
Í ljósi mikillar umræðu um skötusel og skötuselsfrumvarp Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra var spurt hér á vef Skessuhorns í liðinni viku: “Hvað er langt síðan farið var að hirða skötusel til vinnslu og útflutnings?” Staðreyndin er nefnilega sú samkvæmt upplýsingum sérfræðinga í ráðuneytinu að aðeins eru um 15 ár frá því farið var að hirða skötuselinn að marki til manneldis og hann varð útflutningsvara. Þeir voru 20,5% svarenda sem höfðu rétt fyrir sér með það. Flestir héldu því fram að þetta væri aðeins tíu ára tími, eða 25,5%, og eru þeir á gráu svæði, þar sem alltaf er matsatriði þegar talað er um „að marki“. Þeir sem héldu að 20 ár væru frá því skötuselurinn var gildandi afurð fyrir Íslendinga voru 17,9%, 25 ár sögðu 20,5%, 50 ár svöruðu 10,9% og 100 ár 4,7%.