14. apríl. 2010 07:04
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra og Magnús Orri Schram formaður Samtaka um heilsuferðaþjónustu undirrituðu í gær samning um stuðning iðnaðrráðuneytis við fyrsta stig markaðsátaksins „Heilsulandið Ísland“. Megin markmið samstarfsins er að þróa og hanna sameiginlegt markaðsefni til kynningar á heilsuferðaþjónustu á Íslandi og hefja markaðsátak á Heilsulandinu Íslandi. Um 90 manns mættu á stofnfund Samataka um heilsuferðaþjónustu sem haldinn var í Reykjavík 28. janúar sl. og hafa samtökin nú hafið markvissa þróun vörumerkis fyrir „Heilsulandið Ísland“ ásamt ímyndartexta, stöðlum og skilgreiningum m.a. á því hvað vörumerkið stendur fyrir, hverjir megi nýta sér það og í hvaða samhengi. Samhliða kynningu á vörumerkinu í júní 2010 verða kynntar „vörur“ frá aðilum innan samtakanna eða afsprengi samstarfs aðilanna.
Samtök um heilsuferðaþjónustu munu vinna að ofangreindum markmiðum í nánu samstarfi við fyrirtæki og stofnanir tengdar ferðamálum, atvinnuþróun og heilbrigðismálum. Samtök um heilsutengda ferðaþjónustu eru vistuð á Ferðamálastofu og er starfsmaður þeirra Sunna Þórðardóttir, ferðamálafræðingur.