21. apríl. 2010 03:09
 |
Gísli bæjarstjóri verður í baráttusæti listans. |
Á fundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akranesi sem haldinn var í gær var samþykktur framboðslisti sjálfstæðismanna á Akranesi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í vor. "Gunnar Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar verður áfram oddviti sjálfstæðismanna á Akranesi. Á listanum haldast í hendur mikil reynsla og endurnýjun,” segir í tilkynningu. Röð efstu fjögurra manna á listanum er sú sama og niðurstaðan varð í prófkjöri flokksins í vetur. Í fimmta sæti listans er svo Gísli S Einarsson bæjarstjóri sem fyllir skarð Ragnars Ragnarssonar sem hafnaði í 5. sæti í prófkjörinu en dró framboð sitt til baka.
Gísli hafnaði eins og kunnugt er neðar en 6. sæti í prófkjörinu 27. febrúar. Aðspurður sagði Gunnar Sigurðsson, oddviti listans, um hvort Gísli væri ekki þar með áfram bæjarstjóraefni flokksins, að slíkt hafi ekki verið rætt. “Ég heyrði þennan lista í fyrsta skipti fram borinn í gærkvöldi á fulltrúaráðsfundinum. Sá möguleiki hefur ekki verið ræddur í okkar röðum. Listinn var hins vegar samþykktur með öllum atkvæðum, en tveir sátu hjá,” sagði Gunnar í samtali við Skessuhorn.
Gísli S Einarsson kvaðst í samtali við Skessuhorn fagna þeim stuðningi sem honum hefði verið sýnt. "Ég geri jafnframt ráð fyrir því að fimmta sæti listans verði jafnframt bæjarstjórasæti, um það held ég að flokksfélagar mínir séu sammála,"sagði Gísli.
Ekki náðist í Bergþór Ólason formann fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akranesi.
Framboðslistinn í heild sinni er þannig:
1. Gunnar Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar
2. Einar Brandsson, sölustjóri
3. Karen Jónsdóttir, formaður bæjarráðs
4. Eydís Aðalbjörnsdóttir, bæjarfulltrúi
5. Gísli S. Einarsson, bæjarstjóri
6. Anna María Þórðardóttir, fótaaðgerðafræðingur
7. Íris Bjarnadóttir, laganemi
8. Snjólfur Eiríksson, garðyrkjustjóri
9. Ólöf Linda Ólafsdóttir, skrifstofustjóri
10. Ólafur Adolfsson, lyfjafræðingur
11. Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir, nemi í ferðamálafræði
12. Jón Axel Svavarsson, nemi í FVA
13. Ása Þóra Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur
14. Heimir Einarsson, knattspyrnumaður
15. Eva Laufey Hermannsdóttir, nemi
16. Eyrún Reynisdóttir, nemi í FVA
17. Þóra Björk Kristinsdóttir, hjúkrunarfræðingur
18. Þórður Þórðarson, framkvæmdastjóri