23. apríl. 2010 02:11
Sunnudaginn 25. apríl verður boðið til samveru í Reykholtskirkju sem er sérstaklega ætluð barnafjölskyldum. Samveran hefst með barnastund í kirkjunni klukkan tvö. Að henni lokinni verður boðið upp á eitthvað gott í safnaðarsalnum og klukkan þrjú hefst leiksýningin Kamilla og þjófurinn eftir Kari Vinje í flutningi Stoppleikhópsins. Leikarar eru Eggert Kaaber og Margrét Kaaber sem einnig sér um leikgerð og leikstjórn. Búninga gerði Súsanna Magnúsdóttir og tónlist og söngtextar eru eftir Valgeir Skagfjörð.
Sögur Kari Vinje eru einstakar því þær eru uppfullar af mannlegri hlýju og húmor ásamt því að fræða börnin um kristilega hugsun og gjörðir. Sögur hennar eins og Ósýnilegi vinurinn, Við guð erum vinir og Kamilla og þjófurinn hafa löngum verið vinsælar og víða lesnar í sumarbúðum, á leikjanámskeiðum og æskulýðsstarfi kirkjunnar svo eitthvað sé nefnt. Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.
Tónleikar sama dag
Sama dag klukkan 16.00 verða svo tónleikar með Gunnari Guðbjörnssyni, tenórsöngvara og Jónasi Ingimundarsyni, píanóleikara í Reykholtskirkju. Efnisskrá tónleikana verður sú sama og þeir flytja í Berlín í lok apríl og þann 3.maí í óperuhúsinu í Freiburg. Tónleikarnir í Freiburg verða endapunkturinn á samstarfi Gunnars við Freiburgaróperuna en þar hefur hann sungið hlutverkin Max, Herodes, Siegfried og síðast Huon í Oberon eftir Weber við góðan orðstí og lof gagnrýnenda.
Gunnar og Jónas hafa unnið saman á þriðja áratug. Þeir hafa haldið fjölda tónleika hér á landi og erlendis og gert upptökur fyrir útvarp og einnig gefið út geislaplötur. Ferðir þeirra um Ísland eru orðnar margar og utan landsteinanna má nefna tónleika í Wigmore Hall í London og í óperuhúsinu í Wiesabaden í Þýskalandi. Þeir félagar hafa á síðustu árum fengið fá tækifæri til samstarfs og eru því tónleikarnir í Salnum, á Stokkalæk, í Reykholti, í Berlín og Freiburg þeim kærkomið tækifæri til að endurlífga samstarfið.
Dagskrá tónleikanna samanstendur af íslenskum sönglögum, skandinavískum ljóðum og lögum eftir Richard Strauss.
Aðgangseyrir er 2.000 krónur
-fréttatilkynning.