18. júní. 2010 12:01
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness segir að afturkalla eigi aðildarumsókn að Evrópusambandinu í ljósi frétta um að þýska þingið hafi sett fram það skilyrði fyrir fullri aðild Íslands að Íslendingar hætti hvalveiðum. Þá segir hann meðal annars að “ef þetta er það sem koma skal í þessum aðildarviðræðum þá virðist ekki vera von á góðu fyrir okkur Íslendinga og því ítreka ég þá skoðun mína að betra sé að afturkalla aðildarumsóknina heldur en að liggja undir svona hótunum,” segir Vilhjálmur. “Það voru 150 manns sem höfðu atvinnu af hvalveiðum í fyrra í það minnsta og meðallaun starfsmanna í Hvalstöðinni í Hvalfirði og á Akranesi voru nálægt 600 þúsund krónum þó vissulega hafi mikil vinna legið að baki þeim tekjum.
Við getum ekki undir nokkrum kringumstæðum látið aðrar þjóðir segja okkur hvort við megum nýta okkar auðlindir þegar í ljós hefur komið að stofnarnir þola þær veiðar sem stundaðar eru. Og einnig er rétt að benda á það gríðarlega atvinnuleysi sem herjar á okkur Íslendinga um þessar mundir,” segir Vilhjálmur Birgisson.