05. júlí. 2010 02:02
Leikskólinn Skýjaborg í Hvalfjarðarsveit fékk afhendan Grænfánann föstudaginn 2. júlí síðastliðinn. Það voru Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Orri Páll Jóhannsson verkefnisstjóri Skóla á grænni grein hjá Landvernd sem færðu leikskólanum fánann en skólinn er sá hundraðasti til að flagga Grænfánanum á Íslandi. Það tók leikskólann ekki nema um 10 mánuði að fá fánann en átakið hófst á þeirri merku dagsetningu 09.09.09. Fjölmenni var við athöfnina og óskaði Birna María Antonsdóttir skólanum til hamingju fyrir hönd Hvalfjarðarsveitar og færði Sigurði Sigurjónssyni leikskólastjóra gjöf.
„Fáninn er ákveðin viðurkenning á þessu starfi sem við erum að vinna. Það tók okkur svona stuttan tíma að fá fánann vegna þess að hugsunin var komin löngu áður. Við endurvinnum og höfum minnkað sorp í urðun. Það eru nánast eingöngu bleiur sem fara í ruslið hjá okkur, annað er endurunnið og endurnýtt. Hér fer fram almenn umhverfisfræðsla og svo erum við með útikennslu og ræktun. Verkefnið er samtvinnað í skólanámskrána, þetta fer inn í allt okkar starf og hugsun. Þetta er mjög fjölbreytt verkefni sem blandast í allt starfið,“ sagði Sigurður Sigurjónsson leikskólastjóri Skýjaborgar í samtali við Skessuhorn.