12. júlí. 2010 10:00
Þrátt fyrir að ÍA-liðinu tækist ekki að leggja ÍR-inga að velli á Skaganum á föstudagskvöldið, næðu aðeins einu stigi úr leiknum, fóru Skagamenn úr sjöunda sæti í það sjötta og eru þar með komnir í efri helming deildarinnar. Síðasti leikur ÍA í fyrri hluta mótsins, það er í 11. umferð, fer fram á KA-vellinum á Akureyri næsta miðvikudagskvöld. Gestirnir úr Breiðholtinu voru heldur sterkari langt fram eftir í leiknum á Skaganum á föstudagskvöldið. Markalaust var í fyrri hálfleik og það var gegn gangi leiksins þegar Skagamenn skoruðu og náðu forystunni á 9. mínútu síðari hálfleiks. Eftir aukaspyrnu Igor Pesic fékk Arnar Már Guðjónsson boltann utarlega í vítateignum og náði að skora með hnitmiðuðu skoti í fjærhornið. En Adam var ekki lengi í Paradís Skagamanna því ÍR-ingar jöfnuðu þremur mínútum síðar.
Fátt markvert gerðist síðan í leiknum fyrr en á síðustu mínútunum þegar óheppnin elti Skagaliðið, þar sem boltinn fær ítrekað í stangir og þverslá án þess að fara inn fyrir línuna. Lokatölur því 1:1.
Hjá ÍA var það aftasta línan sem skilaði sínu vel í leiknum. Páll Gísli í markinu og varnarmennirnir ungu Andri Geir Alexandersson, Einar Logi Einarsson, Guðmundur Böðvar Guðjónsson og Ísleifur Örn Guðmundsson. Þá var Ragnar Þór Gunnarsson góður í stöðu aftasta miðjumanns.