13. júlí. 2010 09:01
Atvinnuleysi á Vesturlandi minnkaði í júnímánuði um tæpt prósentustig af skráðum mannaafla á vinnumarkaði, var 4,4% í júní en 5,2% í maí. Þetta er heldur meiri bati á vinnumarkaðnum en var að meðaltali yfir landið, en atvinnuleysi á landinu öllu í júní var 7,6% í stað 8,3% í maí. Batinn á vinnumarkaðnum í júní var hlutfallslega meiri á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu. Atvinnuleysi á landsbyggðinni minnkaði að jafnaði um 1,1 prósentustig frá maí til júní en um 0,6% á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í yfirliti Vinnumálastofnunar um atvinnuástandið.
Sem fyrr er atvinnuleysið meira hjá konum en körlum og á Vesturlandi leystist meira úr atvinnumálum karla en kvenna í júní. Breytingin milli mánaða var 1% hjá körlum en 0,7% hjá konum. Atvinnuleysið er eins og áður mest á Suðurnesjum 11,9% og á höfuðborgarsvæðinu 8,5%. Fæstir eru án vinnu á Norðurlandi vestra 2,6% og Vestfjörðum og Austurlandi 3,1% á hvoru svæði. Því næst kemur Vesturland með 4,4% og þá Suðurland með 5,2%.