19. júlí. 2010 09:01
Árið 2008 hlutu sveitarfélögin fimm á Snæfellsnesi; Eyja- og Miklaholtshreppur, Grundarfjarðarbær, Helgafellssveit, Snæfellsbær og Stykkishólmsbær, ásamt Snæfellsjökulsþjóðgarði, Green Globe umhverfisvottun samfélaga. Var svæðið jafnfram fyrsta samfélagið í Evrópu til þess að hljóta slíka vottun og það fjórða í heiminum. Á heimasíðu Framkvæmdaráðs Snæfellsness segir að vottunarmálum sé þannig háttað að fullkomnun er aldrei náð og því skipti miklu máli að sífellt sé sýnt fram á betri árangur í umhverfismálum á svæðinu. “Í maí síðastliðinn komu hingað þau Cathy Colgan, margreyndur úttektaraðili, og Haukur Haraldsson frá Almennu verkfræðistofunni, og mátu það hvort samfélögin á Snæfellsnesi stæðust kröfur um endurnýjaða vottun. Samkvæmt skýrslu þeirra til EarthCheck var mælt með því að vottun fengist á ný og þann 15. júlí síðastliðinn fengu sveitarfélögin tilkynningu um að umhverfisvottunin yrði endurnýjuð, nú undir merkjum EarthCheck. Sömu vottunarsamtökin standa að vottuninni og áður og hefur hún ekki breyst efnislega, aðeins nafnið,” segir í fréttinni.