17. ágúst. 2010 02:10
Dagana 6. til 18. september næstkomandi verður haldið á Reykhólum námskeið um viðhald og endursmíði gamalla trébáta. Á námskeiðinu verður farið í viðgerð á 6,5 metra súðbyrtum vélbáti. Áætlað er að námskeiðinu verði skipt upp í fjóra hluta á námskeiðstímanum. Þá yrði skipt um afturstefni dagana 6.-8. september, skipt um byrðing 9.-11. september, höggvin bönd 12-14. september og skipt um borðstokka dagana 15.-18. september. Einnig verður fjallað um segl og reiðabúnað með gamla laginu.
Með því að skipta námskeiðinu upp í þessa fjóra hluta er þátttakendum gefinn kostur á að velja sér þá verkhluta sem að þeir telja að nýtist sér best. Þátttakendur geta því valið einn verklið, komið síðan aftur í annan verklið ef þeir vilja. Aðeins verður greitt fyrir viðveru og getur þátttakandi því stýrt því hver kostnaðurinn verður. Hver klukkustund kostar 1000 kr. en þó að hámarki 8000 kr. dagurinn. Þeir sem vilja smíða allan námskeiðstímann greiða fast verð, 60.000 kr. Þátttakendur sjá sér fyrir fæði og gistingu á námskeiðstímanum en möguleikar á gistingu eru til dæmis tjaldstæði fyrir fellihýsi og hjólhýsi, gistiheimilið Álftaland, Bjarkalundur og einnig er bændagisting á svæðinu.
Skráning fer fram á artser@simnet.is þar sem áhugasamir eru beðnir að skrá nafn, heimilisfang og síma og þann hluta námskeiðsins sem þeir kjósa að nýta sér.