17. ágúst. 2010 07:39
Þrátt fyrir hávaðarok og rigningu var mikið stuð á golfmótinu hjá Audda og Sveppa sem fram fór á Garðavelli á Akranesi sl. sunnudag. Veðrið setti reyndar strik í reikninginn, vegna slæmrar veðurspár mætti aðeins helmingur skráðra keppenda. Þegar allt ætlaði um koll að keyra á Garðavelli upp úr hádeginu á sunnudag var keppni hætt og reiknuð staða eftir þær brautir sem tókst að ljúka keppi á. Verðlaunaafhending var því með fyrra fallinu og allir í góðum gír. Þátttakendur voru ánægir að mótinu loknu og mikið spurt hvort það yrði ekki örugglega haldið aftur að ári.
Auddi og Sveppi blésu þarna til golfmóts fyrir áskrifendur í Stöð 2 Vild og var mótið fyrir aldurinn 13 – 20 ára. Glæsilegir vinningar voru frá Iceland Express, Flugfélagi Íslands og Ölgerðinni. Mótið verður sýnt á Stöð 2 Sport. Audda og Sveppa mótið er meðal fárra opinna golfmóta fyrir börn og unglingar sem haldin eru á landinu.