15. september. 2010 11:20
Síðastliðinn sunnudag voru opnaðar þrjár nýjar vefsíður, skilja.is, kaupmáli.is og erfðaskrá.is, en allar bjóða þær upp á gerð lögfræðisamninga á netinu. Þannig geta þeir sem eru að skilja eða vilja gera kaupmála eða erfðaskrá lagt fram allar nauðsynlegar upplýsingar í gegnum netið sem lögfræðingur vinnur svo úr og útbýr tilskilin skjöl. Þessi skjöl eru síðan send til viðskiptavinarins tilbúin til undirritunar. Þjónustan er rekin í nánu samstarfi við lögmannsstofuna JÁS - lögmenn. Mun þetta vera í fyrsta skipti sem slík þjónusta er í boði hér á landi en þess má geta að á Englandi og í Wales til dæmis er fjórði hver skilnaðarsamningur framkvæmdur með slíkri þjónustu í gegnum netið.
Þjónusta sem síðurnar skilja.is, kaupmáli.is og erfðaskrá.is bjóða upp á eru af þeim toga að flestir, sem þurfa á slíkri þjónustu að halda, geta nýtt sér hana. Lögfræðisamningar á netinu hafa ekki einungis aukin þægindi í för með sér heldur halda forsvarsmenn síðnanna því fram að með þessu fyrirkomulagi aukist gegnsæi í gjaldtöku á lögfræðiþjónustu, en engin sameiginleg gjaldskrá gildir yfir lögfræðiþjónustu á Íslandi. Með lögfræðinetþjónustu sem þessari er hægt að ganga að verkkostnaði vísum eftir því hvaða þjónusta er valin en slíkt á að spara fólki þann kostnað sem fylgir viðtölum hjá lögmönnum vegna skjalagerðarinnar.