20. september. 2010 10:01
Grundaskóli á Akranesi hefur ákveðið að festa í sessi umferðarviku sem hefur fengið yfirskriftina Umferðin er í okkar höndum. “Hugmynd okkar er sú að vetrarstarf Grundaskóla byrji ávallt á þessu verkefni. Fyrsta umferðarvikan gekk mjög vel. Fengu allir árgangar skólans hugmyndir að verkefni frá umferðardeildinni sem þau gátu brúkað eða bætt við. Ýmist voru verkefnin stór eða lítið eða nákvæmlega eins og hver bekkur vildi og voru verkefnin þar að leiðandi misjafnlega umfangsmikil og gátu spannað allt frá eins dags vinnu og upp í vinnu yfir allan veturinn. Frábær vinna hjá öllum bekkjardeildum skólans,” segir Magnea Guðlaugsdóttir hjá umferðardeild Grundaskóla. Í lok umferðarvikunnar var umferðardeildin með hjólaratleik fyrir kennara skólans um bæinn og þótt það verkefni heppnast ágætlega.