26. apríl. 2011 01:11
Opna Borgarfjarðarmótinu í bridds lauk fyrir skömmu, en mótið er samstarfsverkefni briddsfélaganna á Akranesi og í Borgarfirði. Þar vörðu meistaratitil sinn frá síðasta ári félagarnir Magnús Magnússon og Leó Jóhannesson af Skaganum. Þeir enduðu með 61,5% skor. Í öðru sæti urðu Karl Alfreðsson og Bjarni Guðmundsson á Akranesi með 56,6% og í þriðja sæti Hvanneyringarnir Sveinbjörn Eyjólfsson og Lárus Pétursson.
Í kvöld verður síðasta spilakvöld vetrarins í Logalandi, má kalla það sumartvímenning. Mánudaginn 18. apríl var spilaður léttur tvímenningur hjá BB í Logalandi. Sveinbjörn Eyjólfsson og Lárus Pétursson vor í feikna stuði þar og skoruðu 65,4%, Guðmundur Arason og Guðjón Karlsson voru aðrir með 61,9% og þriðju urðu Eyjólfur Örnólfsson og Flemming Jessen með 59%.