01. maí. 2011 01:17
Útivistartími barna og unglinga tekur breytingum frá og með deginum í dag, 1. maí. Þá mega 12 ára börn og yngri vera úti til klukkan 22.00 en 13 til 16 ára unglingar mega vera úti til miðnættis. Börn mega ekki vera á almannafæri utan fyrrgreinds tíma nema í fylgd með fullorðnum. Bregða má út af reglunum fyrir síðartalda hópinn þegar unglingar eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Aldur miðast við fæðingarár. Útivistarreglurnar eru samkvæmt barnaverndarlögum. Þeim er m.a. ætlað að tryggja nægan svefn en hann er börnum og unglingum nauðsynlegur.