10. maí. 2011 12:01
Í tilkynningu frá Mæðrastyrksnefnd Vesturlands segir að tekið verði á móti umsóknum vegna matarúthlutunar maímánaðar alla virka daga frá 13. maí til og með 24. maí frá klukkan 10 til 14 í síma 859-3200. ATH! Það er nýtt símanúmer. "Að gefnu tilefni viljum við benda fólki á að hringja og sækja um þó að það sé komið á lista hjá okkur. Við þjónum öllu Vesturlandi og reynum að senda á þá þéttbýlisstaði sem sótt er um frá," segir í tilkynningu.
Kökubasar til styrktar Mæðrastyrksnefndinni verður í Bónushúsinu á Akranesi föstudaginn 13. maí n.k. frá kl 16:00. Fulltrúar úr nefndinni taka á móti bakkelsi á sama stað frá kl 15.30.