11. maí. 2011 11:01
Skagamönnum barst mikilvægur liðsstyrkur frá Englandi í júlí í fyrra. Eftir annars erfitt tímabil í 1. deildinni tókst unga leikmanninum Gary Martin að snúa við blaðinu en liðið tapaði aðeins einum af þeim níu leikjum sem hann lék með því í deildinni í lok síðasta sumars. Hann hefur nú skorað 31 mark í aðeins 24 leikjum fyrir ÍA sem verður að teljast ásættanlegur árangur hjá þessum unga sóknarmanni sem margir telja einn þann besta á Íslandi í dag. “Markmiðið er að fara upp í úrvalsdeild eftir þetta tímabil,” sagði Gary Martin í samtali við Skessuhorn í síðustu viku. Þar segist hann meðal annars ætla að skora fleiri mörk en spilaða leiki í sumar.
Sérblað um 1. deildarliðin á Vesturlandi, ÍA og Víking Ó., fylgir Skessuhorni vikunnar sem kom út í dag. Þar er meðal annars kynning á leikmönnum ÍA og Víkings Ó, rætt við þjálfara, lykilmenn og stuðningsmenn. Leikjaplanið er kynnt og sparkspekingar spá um gengi sinna liða.