12. maí. 2011 02:53
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra, auk fulltrúa Grundaskóla á Akranesi og Umferðarstofu, skrifuðu í dag undir áframhaldandi samning um umferðarfræðslu í skólum. Grundaskóli hefur með starfi sínu verið öðrum grunnskólum á Íslandi til fyrirmyndar og ráðgjafar á þessu sviði allt frá árinu 2005. Markmið fræðslunnar er að koma umferðarfræðslu inn í skólanámskrár allra grunnskóla, halda námskeið í umferðarfræðslu fyrir grunnskólakennara í grunnskólum landsins þeim að kostnaðarlausu, vera öðrum grunnskólum í landinu til fyrirmyndar og ráðgjafar á sviði umferðarfræðslu og efla námsefnisgerð í umferðarfræðslu og stuðla að þróun náms- og fræðsluvefs um umferðarmál. Grundaskóli hefur á liðnum árum unnið að gerð sérstaks fræðsluvefs www.umferd.is í samvinnu við Umferðarstofu og Námsgagnastofnun. Á vefnum er hægt að nálgast leiðbeiningar og fræðslu fyrir börn, foreldra og kennara sem annast umferðarfræðslu.