17. maí. 2011 12:01
Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni dróst umferðin á landinu öllu saman um 5,7% að jafnaði í apríl miðað við apríl 2010. Þá spáir Vegagerðin því að umferðin á landinu muni dragast saman um yfir 8% á landinu á þessu ári. Innbyrðis sveiflur eru miklar, til dæmis mældist 19,5% samdráttur á Suðurlandi en 11% aukning á sama tíma á Austurlandi. Hér er þó ekki allt sem sýnist því fyrir einu ári var gríðarleg umferð um Suðurland í tengslum við eldgos á Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjallajökli. Eðlilegt er því að samanburðurinn við þann tíma birtist nú sem gríðarlegur samdráttur. Umferð í Hvalfjarðargöngum dróst saman um 4,3% í apríl miðað við sama mánuð í fyrra. Þetta er ívið minni samdráttur en mældist í sama mánuði á talningarstöðum Vegagerðarinnar á hringveginum. Alls fóru 142.200 ökutæki undir Hvalfjörð í apríl í ár, 6.400 færri en í fyrra.