02. nóvember. 2011 08:01
Stjórn Faxaflóahafna sf. samþykkti fjárhagsáætlun næsta árs á fundi 14. október sl. Áætlar stjórnin að árið 2012 verði með svipuðu sniði og rekstrarumhverfi núverandi árs og ársins 2010 með tilliti til tekna, rekstrarkostnaðar og fjárfestinga. Eitt aðaleinkenni núverandi rekstraraðstæðna er lítil lóðaeftirspurn sem hefur haft neikvæð áhrif á fjárfestingar Faxaflóahafna svo og endurnýjun á mannvirkjum sameignarfélagsins. Heilt yfir gerir þó stjórn félagsins ráð fyrir að skila ríflegum 200 milljóna króna tekjuafgangi á næsta ári, nokkuð meira en áætlað var fyrir árið 2011. Er helst skýringu að finna í fjármagnsliðum því fjárhagsáætlunin greinir frá minni fjármagnskostnaði eða lækkun um 14 milljónir á næsta ári. Arðgreiðslur til eigenda verði að lokum óbreyttar frá síðasta ári.
Um 800 milljónum verður varið til framkvæmda á næsta rekstrarári. Um helmingur mun fara til framkvæmda við lengingu á Skarfabakka í Reykjavík, eða um 426 milljónir króna. Mat stjórnin er að brýnna væri að leggja höfuðáherslu á Skarfabakka að þessu sinni heldur en lengingu á Tangabakka á Grundartanga svo tryggja mætti viðunandi viðlegupláss fyrir skemmtiferðaskip sem til landsins koma á næstu árum. Engu að síður verður undirbúningi haldið áfram við lengingu Tangabakka á Grundartanga ásamt öðrum viðhalds- og framkvæmdaverkefnum á staðnum. Gerir stjórnin ráð fyrir að 127 milljónir fari til framkvæmda á Grundartangi á næsta ári. Loks munu Faxaflóahafnir ráðast í viðhaldsverkefni og umhverfisbætur margskonar á næsta rekstrarári meðal annars á Akraneshöfn en einnig á Borgarneshöfn. Eru 15 milljónir eyrnamerktar þessum tveimur Vesturlandshöfnum, 13 milljónir á Akranes og tvær milljónir í Borgarnes.