08. nóvember. 2011 04:52
Landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar ræddi á fundi sínum í dag um stöðuna sem upp er komin í dýralæknaþjónustu í sveitarfélaginu. Lýstu nefndarmenn afar þungum áhyggjum af stöðu dýralæknaþjónustu í Borgarbyggð. „Eins og staðan er í dag er ekki tryggt að bændur fái þjónustu dýralækna á dagvinnutíma. Nýorðnar breytingar hafa það í för með sér að starfandi dýralæknum á svæðinu hefur fækkað. Landbúnaðarnefnd krefst þess að Matvælastofnun endurskilgreini Borgarbyggð úr þéttbýlu svæði í dreifbýlt, þannig að dýrum sveitarfélagsins sé tryggð dýralæknaþjónusta allan sólarhringinn. Sveitarfélagið er víðfeðmt, vegalengdir miklar og vegakerfið ekki eins og best verður á kosið. Samkvæmt nýrri matvælalöggjöf krefst Matvælastofnun þess að bændur tryggi velferð dýra sinna. Forsenda þess er örugg og skjót dýralæknaþjónusta. Nefndin fer fram á að gerður verði þjónustusamningur við dýralækna sem nær til dag- og næturvinnu.“