20. júní. 2012 09:35
Samkomulag hefur náðst milli formanna stjórnmálaflokkana um þinglok á Alþingi. Sem hluti af því samkomulagi mun frumvarp um veiðigjald á næsta fiskveiðiári, 1. sept. – 31. júlí, verða afgreitt á Alþingi, en með þó nokkrum breytingum. Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon sendu frá sér yfirlýsingu í gærkvöldi þar sem, meðal annars, breytingar á frumvarpi um veiðigjald eru tíundaðar. Veiðigjaldið verður 23,2 krónur á hvert kíló af botnfiski og 27,5 krónur á uppsjávarfisk. Áætlað er að þetta muni skila á bilinu 12,7 – 13,8 milljarðar króna í ríkissjóð. Upprunalega átti veiðigjaldið að skila um 19,5 milljörðum króna. Nú greiða útgerðir um 4,5 milljarða í veiðigjald. Frumvarpi um stjórn fiskveiða verður frestað til næsta þings.
Veiðigjaldið var sett á í eitt ár. Á þessu eina ári verður gjaldið endurmetið af sérstökum samráðshópi. Fjórir gjalddagar verða á veiðigjaldinu og stað þriggja. Einnig er hafður sá fyrirvari að verði óvæntur aflabrestur, verðfall á mörkuðum eða ef veiðigjaldsnefnd uppgötvar skekkju í forsendum við mat á auðlindarentu verður álagning endurskoðuð fyrir þriðja eða í síðasta lagi fjórða gjalddaga næsta fiskveiðiárs. Ef tekjur ríkissjóðs fari yfir 13,8 milljarða á árinu 2013 verður tekið tillit til þess til lækkunar á fiskveiðiárinu á eftir, 2013/2014. Fram kemur einnig í yfirlýsingunni að rækju- og skelbætur verði óbreyttar frá því sem nú er.