26. júlí. 2012 12:01
Evrópumeistararnir úr Gerplu í hópfimleikum sýna og kenna fimleika á ferð sinni um landið í sumar. Eins og hefð er orðin fyrir mun hópurinn koma fram á bæjarhátíð Grundfirðinga; Á góðri stund, en einnig sýna og kenna fimleika í Stykkishólmi á sunnudaginn. Dagskrá hópsins um helgina er þannig að annað kvöld, föstudag verður fimleikasýning í Grundarfirði klukkan 21 á knattspyrnuvellinum. Laugardaginn 28. júlí verður sýning og kennsla í íþróttahúsinu í Grundarfirði klukkan 10:30 til 12:30. Á sunnudaginn verður hópurinn með sýningu og kennslu í íþróttamiðstöðinni í Stykkishólmi klukkan 16-18. Heimsóknin á Vesturland er liður í Fimleikahringnum svokallaða, sem er samstarfsverkefni Íþróttafélagsins Gerplu, UMFÍ og Olís. Tilgangur Fimleikahringsins er að kynna hópfimleika fyrir landsbyggðinni og vekja athygli á Ungmennalandsmóti UMFÍ sem fram fer um Verslunarmannahelgina á Selfossi.
Að hverri sýningu lokinni gefst krökkum og unglingum kostur á að hljóta leiðsögn frá Evrópumeisturunum í fimleikum á um klukkustundarlöngu fimleikanámskeiði. Þátttaka í fimleikanámskeiðinu kostar 1.000 kr. Allur ágóði af kennslunni fer í sjóð til að fjármagna ferð hópsins á Evrópumeistaramótið í Århus í haust þar sem hópurinn freistar þess að verja Evrópumeistaratitil Íslands.