14. ágúst. 2012 08:01
Vegna árlegs viðhalds íþróttamiðstöðvarinnar verður Jaðarsbakkalaug á Akranesi lokuð frá mánudegi í þessari viku til og með föstudegsins 17. ágúst. Sundlaugin opnar aftur laugardaginn 18. ágúst. Opið verður í þreksalinn frá kl. 07:00-18:00 alla dagana nema föstudaginn 17. ágúst. Enginn möguleiki er á búningsaðstöðu eða sturtu á meðan viðgerðum stendur, segir í tilkynningu frá forstöðumanni íþróttamannvirkjanna.