13. ágúst. 2004 08:05
Frætt um réttindi og skyldur
Í síðustu viku buðu stjórnendur Verkalýðsfélags Akraness 16 ára ungmennum til veislu í félagsmiðstöðinni Arnardal. Tilefni heimboðsins var að fræða ungu kynslóðina, sem á næsta ári fer á hinn almenna vinnumarkað, um hlutverk og skyldur verkalýðsfélaga, launþega og vinnuveitenda. Að sögn Vilhjálms Birgissonar, formanns VLFA, er um nýbreytni að ræða í starfsemi félagsins. “Við viljum efla tengls okkar við félagsmenn og ekki síst þau yngstu sem eru við það að fara út á hinn almenna vinnumarkað. Það er nauðsynlegt fyrir þau sem einstaklinga og verðandi launþega að fræðast vel um réttindi sín og ekki síður skyldur á vinnumarkaði. Hlutverk verkalýðsfélaga er ekki síst minna í dag en það hefur verið undanfarna áratugi og því fannst okkur tilvalið að bjóða þessum hópi í heimsókn og ræða þessi mál við þau,” sagði Vilhjálmur í samtali við Skessuhorn. Eftir stutta kynningu var öllum boðið í grill í félagsmiðstöðinni Arnardal og var ljóst á unga fólkinu að það kunni vel að meta framtakið.