18. ágúst. 2004 02:59
Vallarsel brátt fullnýtt
Undirbúningur er hafinn að því að taka inn börn í síðasta áfangann af nýlegri stækkun leikskólans Vallarsels á Akranesi og gengur sá undirbúningur vel, að sögn Lilju Guðlaugsdóttur leikskólastjóra. Í samtali við Skessuhorn sagði Lilja að í lok september væri gert ráð fyrir að húsnæðið yrði fullnýtt en um 1. september verða yngstu börnin tekin inn, en þau eru fædd í janúar 2003.
Leikskólinn Vallarsel er eftir stækkunina sex deilda leikskóli og býður hann uppá að alla jafna séu þar 143 börn í einu. Börn sem eru yngri en tveggja ára krefjast fleiri starfsmanna og meira rýmis í heild sinni en börn sem eru tveggja ára og eldri og því verður ekki alveg strax hægt að taka hámarksfjölda barna inn í skólann. Lilja segir að nú sé búið að fylla rýmið að morgninum.
Fljótlega verður þannig lokið við að taka inn öll börn af biðlista sem fædd eru árið 2002 og eldri og verða yngstu börnin á leikskólanum þau sem eru fædd í janúar 2003, eins og áður segir.