22. ágúst. 2013 01:01
„Hvernig náum við meiri árangri,“ er umfjöllunarefni málþings sem Fagráð í hrossarækt og Landbúnaðarháskóli Íslands boða til um kynbótakerfið í hrossarækt. Málþingið verður föstudaginn 6. september frá kl. 13 til 18 í Ásgarði á Hvanneyri. Dagskrá samanstendur af nokkrum inngangserindum um ýmsar hliðar kerfisins þ.m.t. dómkerfið, dómsstörf og sýningar, dómara, kynbótamat o.fl. en síðan taka við opnar umræður og hópavinna með þátttöku málþingsgesta. Allt áhugafólk um kynbætur íslenska hestsins er hvatt til að mæta og taka þátt. Þátttökugjald krónur 1000 þarf að greiða á staðnum. Nánari upplýsingar og skráning er hjá Endurmenntun LbhÍ – www.lbhi.is/namskeid eða í síma 433 5000 og netfangið endurmenntun@lbhi.is