28. ágúst. 2013 03:59
Í gær var í Skemmunni á Hvanneyri úthlutað námsstyrkjum úr Minningarsjóði Hjartar Snorrasonar og Ragnheiðar Torfadóttur. Styrki hlutu átta meistaranemar LbhÍ og hlaut hver og einn styrk að upphæð hálf milljón króna. Styrkþegar eru Egill Gunnarsson, Guðfinna Lára Hávarðsdóttir, Helgi Elí Hálfdánarson, Hrannar Smári Hilmarsson, Lilja Dögg Guðnadóttir, Ólöf Ósk Guðmundsdóttir, Snorri Þorsteinsson og Snædís Anna Þórhallsdóttir. Sjóðurinn var stofnaður til minningar um Hjört Snorrason og Ragnheiði Torfadóttur, skólastjórahjón á Hvanneyri, af sonum þeirra á 75 ára afmæli Hvanneyrarskólans. Stjórn sjóðsins skipa Ágúst Sigurðsson rektor, Jóhannes Sveinbjörnsson deildarforseti auðlindadeildar og Ragnheiður Torfadóttir barnabarn hjónanna og fv. rektor MR.