28. ágúst. 2013 05:25
Veðurstofan gerir áfram ráð fyrir vonskuveðri í lok vikunnar. Nokkrar breytingar hafa orðið á fyrri spám og vindstrengurinn hefur færst nokkuð vestar. Því eru jafnvel taldar líkur á að veður gæti orðið slæmt um vestanvert landið, á Vestfjörðum auk Norðurlands. Enn er spáin að breytast og er gert ráð fyrir að lægðin sem gengur yfir dýpki mjög hratt. "Nokkur óvissa er um í hvaða landshluta veðrið verður verst, en gera má ráð fyrir slæmu veðri víða á landinu. Einnig má búast við ísingu þegar kólnar," segir í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Almannavarnadeild hefur síðustu daga verið í sambandi við lögreglustjóra, almannavarnanefndir, sveitarstjóra, bændur, og ferðaþjónustuaðila og fleiri og hvatt þá til að fylgjast með veðurspám, og upplýsa þá sem eru á ferð um veðurútlit og grípa til aðgerða ef með þarf með öryggi almennings að leiðarljósi.
Þá fundaði almannavarnadeildin með fulltrúum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Safe Travel í dag, en björgunarsveitarmenn á vegum hálendisvaktarinnar hafa farið um svæðið norðan Vatnajökuls og mið- hálendið og upplýst hjólreiðamenn, göngumenn, ökumenn og aðra sem þar eru á ferð. Upplýsingamiðstöðvar ferðaþjónustunnar, gististaðir, skálaverðir og landverðir hafa einnig fengið tilkynningar um það veður, sem er í aðsigi. Svæðisstjórnir björgunarsveita hafa einnig allar verið upplýstar.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra fylgist áfram með framvindunni í samvinnu við Veðurstofuna og miðlar upplýsingum á www.almannavarnir.is og á facebook síðu deildarinnar https://www.facebook.com/Almannavarnir