10. mars. 2014 03:26
Í tilkynningu frá Vegagerðinni nú um nónbil segir að það eru hálkublettir og snjóþekja víða á vegum á Vesturlandi. Ófært og óveður er á Fróðárheiði og óveður er á norðanverðu Snæfellsnesi. Hálka og skafrenningur er á Bröttubrekku og Holtavörðuheiði. Óveður er við Hafnarfjall. Ástæða er til að hvetja fólk til að skoða veðurlýsingar áður en haldið er í ferðir, sem ættu að verða í lágmarki meðan það versta gengur yfir.
Veðurspá segir að samfara djúpri lægð sem er á leið vestur fyrir land er spáð SA- og síðar SV-stormi með úrkomu og skörpum blota sem nær einnig víða upp á fjallvegi. Þar sem snjór og ís er fyrir verður flughált við þessar aðstæður síðar í dag og kvöld. Reikna má með hviðum 30-40 m/s á utanverðu Kjalarnesi og við Hafnarfjall eftir hádegi og til kl. 17. Allt að 40-50 m/s verða á norðanverðu Snæfellsnesi frá því um kl. 15 og fram á kvöld.