24. mars. 2014 09:01
Boðað hefur verið til almenns borgarafundar að Hótel Vogi á Fellsströnd í kvöld, mánudaginn 24. mars, klukkan 20:00. Þar verður á dagskrá að ræða samgöngumál, raforkumál og fjarskiptamál. Á fundinn hafi verið boðaðir allir þingmenn Norðvesturkjördæmis ásamt fulltrúum frá Vegagerðinni, Rarik og aðilum sem hafa með fjarskiptamál svæðisins að gera. „Íbúar Dalabyggðar og nærsveita eru hvattir til að mæta á fundinn og koma hugmyndum sínum og skoðunum á framfæri,“ segir í tilkynningu.