25. mars. 2014 09:01
Kvennakórinn Sóldís úr Skagafirði verður á ferðinni um næstu helgi þegar hann heldur tónleika í Borgarfirði. Tónleikar Sóldísa verða laugardaginn 29. mars kl. 15 í Reykholtskirkju og klukkan 20 í Tónbergi á Akranesi. Kórinn var stofnaður á hausdögum 2010 af þremur konum í Skagafirði og samanstendur nú af 43 konum úr Skagafirði og Húnavatnssýslu, auk söngstjóra og undirleikara, en söngstjóri er Sólveig S Einarsdóttir og undirleikari Rögnvaldur Valbergsson. Í tilkynningu frá kórnum vegna tónleikanna sunnan heiða segir að hann haldi sína aðaltónleika á konudeginum ár hvert, í menningarhúsinu Miðgarði í Skagafirði, með hnallþóru veisluborði í lokin. Auk þess heldur kórinn tónleika í nærveitum og fer í söngferð þegar líður að vori í næstu héruð. Á þessu söngári er þemað hjá kórnum „íslenskir textar og íslenskir textahöfundar“. Á síðasta söngári var þemað að syngja lög „eftir konur og um konur“ og árið þar á undan var þemað, fjölmenningarlegt, eða „sungið á sem flestum tungumálum“.