28. mars. 2014 10:01
Á morgun, laugardaginn 29. mars klukkan 10:30 til 12:00, verður haldinn íbúafundur í Hjálmakletti í Borgarnesi þar sem fjallað verður um ritun Sögu Borgarness. Borgnesingum, núverandi og fyrrverandi og öðrum áhugamönnum um sögu bæjarins gefst þar tækifæri á að lýsa skoðunum sínum á því hvað ætti að leggja áherslu á við söguritunina og koma með ábendingar. Páll S Brynjarsson bæjarstjóri setur fundinn og fjallar um undirbúning verksins. Egill Ólafsson sagnfræðingur og skrásetjari við verkefnið gerir grein fyrir vinnunni það sem af er vetri, kynnir drög að kaflaskiptingu og áherslur við söguritun. Eftir framsöguerindi verður opnað fyrir fyrirspurnir og umræður. Íbúar eru hvattir til að mæta.