27. mars. 2014 12:01
Sveitarfélagið Borgarbyggð hefur boðað íbúa til funda um þjónustu sveitarfélagsins, helstu framkvæmdir sem framundan eru og þau mál sem efst eru á baugi í sveitarfélaginu. Á fundunum munu sveitarstjóri og sviðsstjórar sveitarfélagsins ræða þessi málefni við íbúa. Þangað eru íbúar hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum. Fundirnir munu fara fram á eftirtöldum stöðu: Lindartunga mánudaginn 31. mars kl. 20.30, Háskólanum á Bifröst þriðjudaginn 1. apríl kl. 17.30, Þinghamri á Varmalandi þriðjudaginn 1. apríl kl. 20.30, Hjálmakletti í Borgarnesi miðvikudaginn 2. apríl kl. 20.30, Skemmunni á Hvanneyri fimmtudaginn 3. apríl kl. 17.00 og Logaland í Reykholtsdal fimmtudaginn 3. apríl kl. 20.30.