28. mars. 2014 03:06
Opna Borgarfjarðarmótinu í bridds lauk í gærkveldi. Spilað var í Logalandi, Lindartungu og að endingu á Akranesi. Þar tókst Skagamönnum að jafna veitingamet uppsveitunga og Snæfellinga en ríflega var veitt af girnilegum kökum og kruðeríi til að gera kvöldin enn skemmtilegri. Úrslit á mótinu urðu þau að Hvalstrendingarnir Guðmundur Ólafsson og Hallgrímur Rögnvaldsson báru sigur úr býtum. Silfurverðlaun fara á Hvanneyri til Sveinbjörns Eyjólssonar og Lárusar Péturssonar en bronsið kom í hlut bræðranna Þorvaldar og Guðjóns Guðmundssona á Akranesi. Þorvaldur Pálmason og Jón Viðar Jónmundsson, sem koma úr Reykjavík, urðu fjórðu en Tungnamennirnir og frændurnir Kristján Axelsson og Jóhann Oddsson fimmtu. Briddssamband Vesturlands stóð fyrir mótinu, en formaður þess er Ingimundur Jónsson í Deildartungu.
Nýliðun í gangi í Borgarfirði
Í vetur hefur verið í gangi valáfangi í bridds í Grunnskóla Borgarfjarðar á Varmalandi. Þar hefur Sigríður Arnardóttir kennari og bóndi í Miðgarði tekið að sér leiðsögn við góðar undirtektir. Níu áhugasamir nemendur skólans eru nú búnir að ná góðum tökum á undirstöðuatriðum í bridds og hyggjast félagar í Briddsfélagi Borgarfjarðar bjóða þá velkomna til sín næstkomandi mánudagskvöld. Þar munu vanir spila við nýliða. Þess má geta að þegar stjórnarmenn í Briddssambandi Íslands fréttu af þessum mikla áhuga ungmenna á Varmalandi, ákváðu þeir að gera sér ferð í skólann í morgun og fylgjast með kennslunni. Var skólanum við það tækifæri afhentir að gjöf 16 spilabakkar og briddsbækur að auki. Það er því góð von á að nýliðun verði áfram í félagi briddsspilara í uppsveitum Borgarfjarðar.