01. september. 2014 10:33
Síðastliðinn föstudag voru undirritaðir samningar um smíði þriggja nýrra ísfisktogara fyrir HB Granda. Það er skipasmíðastöðin Celiktrans Deniz Insaat í Tyrklandi sem smíðar nýju togarana en fyrir er stöðin að smíða tvö uppsjávarskip fyrir HB Granda. Samningarnir nú hljóða upp á 6,8 milljarða króna. Áætlað er að fyrsta skipið verði afhent í maí 2016, það næsta síðla sama ár og það þriðja vorið 2017. „Nýju skipin munu leysa af hólmi þrjá togara sem nú eru í rekstri. Það eru Ásbjörn RE, Otto N. Þorláksson RE og Sturlaug H. Böðvarsson AK. Með nýju skipunum eykst hagkvæmni í rekstri, þau munu eyða minni olíu, aflameðferð og nýting verður betri, rekstraröryggi eykst og viðhaldskostnaður mun lækka,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Hönnun skipanna er í höndum Nautic ehf., Lágmúla 5, Reykjavík.