18. september. 2014 10:40
Í gær undirrituðu Akraneskaupstaður og Skagaleikflokkurinn leigusamning til tveggja ára, þar sem félagið mun leigja svokallað starfsmannarými í Sementsverksmiðjunni. Um er að ræða 150 fermetra rými sem staðsett er fyrir neðan matsalinn í skrifstofubyggingunni að Mánabraut 20. Húsaleigan reiknast sem styrkur til félagsins og er hún endurskoðuð í september ár hvert.
Í samningnum er kveðið á um að Skagaleikflokkurinn ábyrgist að rekið verði metnaðarfullt starf, en markmið leikfélagsins er að vinna að eflingu leiklistar, bókmennta og annarrar alhliða menningarstarfsemi. Þeim markmiðum verði meðal annars náð með því að halda uppi sýningum á íslenskum og / eða erlendum leikverkum og taka þátt í viðburðum á vegum Akraneskaupstaðar.