14. janúar. 2005 01:56
Styrktartónleikar til uppbyggingar eftir hamfarirnar í SA-Asíu í lok síðasta árs verða haldnir í Bíóhöllinni á Akranesi í kvöld, föstudag og hefjast klukkan 22:30 eða strax og útsendingu Idol keppninnar lýkur. Allir þeir sem fram koma á tónleikunum og koma á einhvern hátt að vinnu við þá, þar með talið undirbúningi og kynningu, gefa vinnu sína að öllu leyti. Þar með er talinn þáttur hljómsveita sem fram koma, hljóðmanna og annarra tæknimanna ásamt aðstandendum svo sem starfsfólki Bíóhallarinnar og fleiri.
Hljómsveitir sem fram koma verða m.a.: Herradeild PÓ, Worm is Green, Planc, Lotus, Geir Harðarson, Ólafur Páll Gunnarsson, Tríó Péturs, Flaming disaster og fleiri koma fram.
Miðaverð á tónleikana verður krónur 1.000 en gestir geta, ef þeir vilja, greitt meira, en eins og áður segir rennur aðgöngumiðaverð óskipt til uppbyggingar í SA-Asíu og verða peningarnir sem safnast afhentir í sameiginlegum sjónvarpsþætti allra sjónvarpsstöðvanna nk. laugardag. Skessuhorn er einn af styrktaraðilum tónleikanna og hvetur Skagamenn og aðra Vestlendinga til að slá tvær flugur í einu höggi; styrkja gott málefni og fara á afbragðsgóða tónleika.