24. nóvember. 2014 11:36
Fundur í formannaráði Kvenfélagasambands Íslands samþykkti áskorun á fundi sínum sl. laugardag vegna nýbyggingar Landspítala. Þar er skorað á Alþingi og ríkisstjórn Íslands að taka hið allra fyrsta ákvörðun um fullnaðarhönnun og framkvæmdir við byggingu Landspítalans svo eyða megi þeirri óvissu sem skapast hefur í heilbrigðismálum landsins. Í greinargerð með áskoruninni segir m.a.: „Sjúkrahúsin í Reykjavík voru sameinuð árið 2000 með því fyrirheiti að byggt yrði yfir sameinaða starfsemi þeirra og hafin bygging á nútímalegu háskólasjúkrahúsi. Undirbúningur þessa hefur því staðið yfir í nær 15 ár. Hönnun spítalans við Hringbraut var langt komin fyrir tveimur árum en þó liggur ennþá ekki fyrir ákvörðun um hvort ljúka skuli fullnaðarhönnun og hefja framkvæmdir. Ljóst er að þörf fyrir nýbyggingar Landspítala er orðin mjög brýn og því er mikilvægt að hraða þessum úrbótum.“