06. janúar. 2015 03:10
Landhelgisgæslan vill vekja athygli á að flóðstaða morgundagsins, miðvikudaginn 7. janúar, gæti orðið talsvert há við Suðvesturland þar sem saman fer stórstreymi og lágur loftþrýstingur. Árdegisflóði er spáð kl. 07:40 og flóðhæð 4,1 m. Loftþrýstingsspá er um 935 – 945 mb og veðurspá gerir ráð fyrir sunnan- eða suðaustan 16 – 20 m/s. Flóðhæð t.d. í Reykjavík gæti því orðið um 4,7 til 5,0 m. Staðan getur orðið svipuð næstu daga miðað við allar spár, þrátt við minnkandi stórstreymi.