03. febrúar. 2015 08:01
Nýskráðum einkahlutafélögum á árinu 2014 fjölgaði um 6% samanborið við fyrra ár. Alls voru 2.050 ný félög skráð á árinu. Mest fjölgaði í flokknum Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi, eða sem nemur 33%. Gjaldþrotum einkahlutafélaga á sama tíma fækkaði um 14% frá árinu 2013. Alls voru 795 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á árinu, samanborið við 920 árið áður. Gjaldþrotum í flokknum Fasteignaviðskipti hefur fækkað mest, eða um 36%.