10. febrúar. 2015 12:00
Alþjóðlegi netöryggisdagurinn verður haldinn hátíðlegur í tólfta sinn í dag 10. febrúar. Þemað í ár er „Gerum netið betra saman ” og munu Netöryggismiðstöðvar 30 Evrópuþjóða og yfir 100 þjóða um allan heim standa fyrir skipulagðri dagskrá. Í tilefni dagsins vekur SAFT athygli á nýju fræðsluefni og hvetur alla skóla landsins til að fjalla um netöryggi þennan dag og nýta það efni sem til er.
Meðal nýs efnis má nefna:
• Gagnvirkt efni um netöryggi fyrir yngsta-, mið og elsta stig grunnskóla
• Upplýsingahefti fyrir foreldra um börn og miðlanotkun
• Námsefni um hatursorðræðu á netinu
• Ný viðmið fyrir skóla um notkun snjalltækja
• Upplýsingarit um samfélagsmiðla
• Gagnvirkt próf tengt myndinni Stattu með þér! þar sem fjallað er m.a. um netið og birtingamyndir kynjanna, klámvæðingu og að setja mörk
• Námsefni tengt áreiti á netinu, miðlalæsi, tjáningarfrelsi, meiðyrðum, einelti og fordómum.
Nánari upplýsingar á www.saft.is og hjá skrifstofu Heimilis og skóla – landssamtökum foreldra, sími: 516 0100.