13. febrúar. 2015 07:28
Útlit er fyrir að helgarveðrið á Akranesi, og reyndar sunnanverðu Vesturlandi, verði hálf umhleypingasamt um helgina. Samkvæmt veðurspám hlýnar hratt í fyrramálið og eftir hádegi gæti farið að rigna og það jafnvel töluvert. Þá er spáð sunnan roki með rigningunni.
Á sunnudag er hins vegar spáð að hálfskýjað verði fram að hádegi með nokkrum hitagráðum og einhverri úrkomu. Síðan kólnar hratt niður fyrir frostmark síðdegis og um kvöldið gæti farið að snjóa. Sunnan rok verður áfram fram undir kvöldið.
Útivistarfólk mun sjálfsagt ekki láta þetta á sig fá heldur njóta þess að fara út og viðra sig, sér til heilsubótar, enda möguleikar til þess ótalmargir.
Hér fyrir neðan er innslag úr Sjónvarpi Skessuhorns í þessari viku um útivistarparadísina Akranes, þar sem talað er við þau Regínu Ásvaldsdóttur bæjarstjóra og Þórhall Ásmundsson blaðamann.