27. febrúar. 2015 08:01
Nýskráningum einkahlutafélaga síðustu tólf mánuði, frá febrúar 2014 til janúar 2015, hefur fjölgað um 4% samanborið við tólf mánuði þar á undan. Alls voru 2.010 ný félög skráð á tímabilinu. Mest er fjölgun nýskráninga í flokknum „Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi,“ 36% á síðustu tólf mánuðum. Gjaldþrot einkahlutafélaga síðustu tólf mánuði, frá febrúar 2014 til janúar 2015, drógust saman um 12% samanborið við tólf mánuði þar á undan. Samtals voru 811 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu. Gjaldþrotum í flokknum fasteignaviðskipti hefur fækkað mest, eða um 33% á síðasta ári.